• Tor þarfnast þess að kerfisklukkan þín (og tímabeltið) sé rétt stillt.

  • Vírusvarnarforrit eða spilliforritavörn kemur í veg fyrir að notendur geti notað Tor-vafrann. Stundum eiga þessi forrit til að vakna við falskar jákvæðar svaranir vegna spilliforrita og/eða öryggisveilur. Þú getur lesið meira um brekkur á aðstoðargáttinni okkar. Eftirfarandi vírusvarna- og eldveggjarhugbúnaður er þekktur fyrir að trufla Tor og gæti þurft að gera tímabundið óvirkan:

    • Webroot SecureAnywhere
    • Kaspersky Internet Security 2012
    • Sophos Antivirus fyrir Mac
    • Microsoft Security Essentials
    • Avast vírusvörn
  • VPN-þjónustur eiga það til að trufla Tor og gæti þurft að gera óvirkar. Almennt talað mælum við alls ekki með því að nota VPN með Tor nema að þú sért vanur notandi sem vitir hvernig eigi að setja bæði upp þannig að öryggi þitt bíði ekki tjón af. Þú getur fundið nánari upplýsingar um Tor + VPN á wiki-síðunum okkar.

  • Myndskeið sem krefjast Adobe Flash eru ekki tiltæk. Öryggisins vegna er Flash gert óvirkt.

  • Tor getur ekki notað brú ef milliþjónn er stilltur.

  • Tor-vafrapakkinn er dagsettur þann 1. janúar, 2000 kl. 00:00:00 UTC. Þetta er til að tryggja að hver einasta byggingarútgáfa sé nákvæmlega eins.

  • Vandamál við að gera Tor-vafrann að sjálfgefnum netvafra.

  • Ef Tor-vafrinn virkaði áður en virkar ekki núna (sérstaklega eftir enduruppsetningu eða uppfærslu), gæti kerfið þitt hafa verið í dvala. Endurræsing tölvunnar mun í því tilfelli leysa þetta vandamál.

  • Tor ræsist ekki á Windows þegar slóð möppunnar inniheldur ekki-ascii stafi.

  • BitTorrent er dæmi um hugbúnað þar sem umferð er ekki nafnlaus í gegnum Tor.

  • Web Authentication (WebAuthn) and Universal 2nd Factor (U2F) (i.e. YubiKey) support is disabled in Tor Browser.

  • Images uploaded on Tor Browser (Desktop and Android) are randomized.